Íslenska Fitness Félagið
IFF á Íslandi er opið félag sem býður íþróttafélögum og líkamsræktarstöðvum aðild að starfsemi sinni. Boðið er upp á þjálfun kennara og leyfi til kennslu undir merkjum IFF og Fit Kid gegn greiðslu félagsgjalds. Nánari upplýsingar í gegnum netfang: fitkid@fitkid.is
Markmið félagsins er að bjóða börnum frá 6-16 ára spennandi alhliða íþrótt og fræðslu um heilbrigða lífshætti án öfga. Þannig vill IFF koma á framfæri heilbrigðri sýn á gott líkamlegt atgerfi og auka lífsgæði barna.

Reglur um þáttöku í alþjóðlegum IFF fitness keppnum.
Allir hafa rétt til þess að taka þátt í IFF keppnum fyrir Íslands hönd,
sem eru virkir meðlimir Íslenska Fitness Félagsins og skuldbinda sig til
þáttöku í minnst eitt ár með greiðslu árgjalds sem er 12.000.-kr. ári
fyrir hvern einstakling. (1000.-kr. á mánuði.)
Allir sem stunda FitKid námskeið á Íslandi hafa sjálfkrafa rétt til þáttöku
í mótum sem skipulögð eru af Íslenska Fitness Félaginu, ef íþróttafélagið
eða æfingastöðin sem hún/hann æfir hjá borgar árgjald IFF. (Þáttakandi
borgar þá mánaðarlegt gjald til íþróttafélagsins/æfingastöðvarinnar.)
Flokkar íslenska FitKid kerfisins:
Flokkur C: Allir byrjendur- 1 stöðluð rútína, 60 sek.
4 atriði: akróbatik, liðleiki, styrktaræfingar og hopp.
Flokkur B: Framhaldsflokkur-1 frumsamin rútína, 90 sek. í samræmi við
atriðin fjögur hér að ofan, þar sem hvert atriði kemur tvisvar sinnum
fyrir.
Flokkur A: Þeir sem standast alþjóðlega staðla í sínum aldursflokki-1
frumsamin rútína, 90 sek, samkvæmt alþjóðlegum reglum.
Hafa samband
Stofnandi og Formaður Íslenska Fitness Félagið:
Krisztina G. Agueda
sími: +354-8680863
netfang: fitkid@fitkid.is
Meðstjórnandi:
Edda Dögg Ingibergsdóttir, Berglind Finnbogadóttir , Juan José Agueda Moreno
Yfirþjálfari Fitkid á Íslandi: Auður Agla Óladóttir
Yfirdómari Fitkid á Íslandi: Gabriella Belányi
Póstfang:
Íslenska Fitness Félagið
P.O.Box 169
172 Seltjarnarnes

